Að gera sitt besta? Upplifun ungra umhverfissinna af eigin þátttöku í umhverfisráðstöfunum og umhverfisvænni hegðun
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í takt við ógnvænlega þróun umhverfis- og loftslagsmála hefur átt sér stað mikil vitundarvakning á heimsvísu á þessu sviði. Töluvert hefur borið á tilhneigingu fólks til að aðlaga hegðunarmynstur samkvæmt formerkjum þess að vera umhverfisvænn og reyna þannig að leggja sitt að mörkum til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum eigin lífshátta og neyslu. Rannsókn þessi er eigindleg og byggir á viðtölum við unga umhverfissinna á Íslandi um umhverfishygð (e. environmental concern) þeirra, þátttöku í umhverfisvænni hegðun og viðhorf til einstaklingsbundinna umhverfisráðstafana. Tilgangurinn er að öðlast betri skilning á upplifunum ungs fólks af eigin hlutverki í umhverfis¬verndar¬baráttunni. Tilgangurinn er að kanna hvort ungir umhverfissinnar upplifi að þekking þeirra á stöðu umhverfismála stangist á við þátttöku í umhverfisvænum ráðstöfunum og þá hvernig tekist er á við það ósamræmi. Athyglin beinist að því að skilja hvað það er sem dregur úr getu og/eða vilja fólks til að taka þátt í umhverfisvænum lífsstíl, hvernig óumhverfisvæn hegðun er réttlætt, og hvort samfélagsleg viðmið, orðræða og félagsleg norm hafi áhrif á ákvarðanatöku í þessum málum, samkvæmt þeirra eigin skilningi á því hvað umhverfisvæn hegðun innifelur. Megin niðurstöður eru að þó svo að mikil umhverfishygð ríki í samfélaginu, sem og miklar áhyggjur af loftslagsvánni, ríkja einnig efasemdir um raunverulega skilvirkni einstaklingsþátttöku í sértækum umhverfisvænum lífsháttum. Upplifun viðmælenda var sú að þó svo hver og einn beri að vissu leyti ábyrgð á eigin neyslu væru þau sem einstaklingar að breyta litlu í stóra samhenginu með eigin hegðunarmynstri, því sökin liggi hjá stærri aðilum, stjórnvöldum og fyrirtækjum. Dæmi um þætti sem gjarnan vega þyngra en einstaklingsbundin umhverfishygð eru minnkun á flækjustigi í daglegu lífi og jafnvel hugmyndir um lífsgæði eða verndun andlegrar heilsu, en mestu skiptir þátttaka í aðgerðastefnu sem hvetur til róttækari kerfisbundinna breytinga. Allir viðmælendur játuðu þó að þau upplifðu á tímum ósamræmi milli ...
Titel: |
Að gera sitt besta? Upplifun ungra umhverfissinna af eigin þátttöku í umhverfisráðstöfunum og umhverfisvænni hegðun
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Signý Stella Sigurðardóttir 1999- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2022 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|