Brottvísun EES-borgara á grundvelli allsherjarreglu og almannaöryggis: Hvernig hafa dómstólar túlkað skilyrði 27.gr. tilskipunar 2004/38/EBE og 95.gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, um ógn við allsherjarreglu, við brottvísun EES-borgara á grundvelli afbrota?
2024
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í takt við sífelldar framþróanir í milliríkjasamstarfi evrópuríkjanna, hafa óhjákvæmilega orðið til og mótast nýjar reglur um samvinnu ríkjanna. Óumdeilanlega geta breytingar átt sér stað í takt við tímann og tíðarandann sem ljá reglunum mismikið vægi hverju sinni. Þrátt fyrir það, hafa nokkrar grundvallarreglur fest sig í sessi í samstarfinu og í raun orðið kjarni þess. Þessar reglur hafa í raun orðið grundvöllur eins mikilvægasta milliríkjasamstarfssamnings samtímans, Samningurinn um Evrópska Efnahagssvæðið (hér eftir EES-samningurinn). Meðal þeirra grundvallarreglna sem urðu forsenda tilkomu EES-samningsins, er reglurnar að baki fjórþætta frelsinu. Fjórfrelsið er ein meginástæða þess að aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu (hér eftir EFTA), og Evrópusambandið (hér eftir ESB) mynduðu með sér svo umfangsmikið og mikilvægt milliríkjasamstarf. Fjórfrelsið, sem nánar verður fjallað um hér síðar, snýst í megindráttum um, grundvallarrétt EES-aðildarríkja til frjálsrar farar; vöru, þjónustu, fjármuna og fólks sbr. 2.mgr. 1.gr. EES samningsins. Með innleiðingu grunnreglna ESB um fjórfrelsið í EES-samningnum, var innri markaður ESB-ríkjanna í raun rýmkaður, þannig að fríverslunarsvæði ríkti einnig yfir aðildarríki EFTA. Þannig þurftu EFTA ríkin ekki lengur, hvert um sig, að standa sérstaklega að fríverslunarsamningi um vöruviðskipti, við Efnahagsbandalag Evrópu, sem nú heitir ESB, eins og lengi hafði verið venjan. Þegar um svo veigamiklar meginreglur er að ræða, er mikilvægt að þær beri ekki með sér of víðtækar heimildir þ.e.a.s þannig að þær skarist á við fullveldisrétt aðildarríkjanna og grunnhagsmuni samfélagsins. Þannig hafa undanþágureglur mótast í takt við ESB-löggjöf og EES-rétt sem heimila takmörkun á framangreindri reglu, sem ríkin geta notað til að viðhalda framangreint. Því hefur verið talið heimilt að takmarka fjórfrelsisreglurnar á grundvelli allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Slíkar takmarkanir hafa m.a. verið lögfestar í 95.gr. útlendingalaga nr. 80/2016 (hér eftir útl.) og eru ...
Titel: |
Brottvísun EES-borgara á grundvelli allsherjarreglu og almannaöryggis: Hvernig hafa dómstólar túlkað skilyrði 27.gr. tilskipunar 2004/38/EBE og 95.gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, um ógn við allsherjarreglu, við brottvísun EES-borgara á grundvelli afbrota?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Hekla Gaja Birgisdóttir 2002- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2024 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|