Viðhorfs- og hegðunarbil gagnvart sjálfbærum fatnaði
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Aukinn áhugi og meðvitund á sjálfbærni hefur aukist gríðarlega í gegnum árin. Komið hefur í ljós að núverandi neysla og lifnaðarhættir á meðal fólks í dag mun ekki geta haldið áfram. Hægt og rólega er mannfólkið að eyða auðlindum jarðarinnar og menga hana. Tískuiðnaðurinn er þekktur í dag sem óumhverfisvænn og ósiðferðislegur en svo virðist vera að litlar breytingar séu að gerast innan geirans til að vinna gegn því. Neytendur hafa almennt áhuga á að minnka umhverfisáhrifin sem eru að hafa neikvæð áhrif á jörðina og einnig að vinna að heimi þar sem hugsað er um alþjóðlega velferð. Hins vegar virðist vera að það sé ekki samræmi á milli viðhorfs og hegðunar þrátt fyrir að þeir vilji stuðla að sjálfbærni. Viðhorfs- og hegðunarbilið er hugmyndafræði sem hefur komið á yfirborðið, meðal annars þegar kemur að sjálfbærum fatnaði. Rannsakendur hafa í auknum mæli verið að rannsaka þetta bil og hvað það er sem hindrar neytendur frá því að stunda sjálfbærari lífstíl. Framkvæmd var megindleg rannsókn til að komast að því hvort það sé viðhorfs- og hegðunarbil á meðal íslenskra neytenda gagnvart sjálfbærum fatnaði. Alls tóku 255 manns þátt í könnuninni og var notast við fimm kvarða Likert skala spurningar. Send var út spurningakönnun þar sem þátttakendur svöruðu spurningum sem komu að viðhorfi og hegðun sem hjálpuðu rannsakanda að fá skýrari mynd á málefninu. Niðurstöður sýndu að fylgni var á milli viðhorfs og hegðunar á meðal íslenskra neytenda gagnvart sjálfbærum fatnaði. Hins vegar, þegar kafað var dýpra í svörunina hjá þátttakendum var hægt að sjá að neytendur virtust hafa jákvæðari svörun gagnvart viðhorfsspurningunum frekar en hegðunarspurningunum. Út af þessu er ekki hægt að alhæfa að það sé viðhorfs- og hegðunarbil á Íslandi til sjálfbærs fatnaðar, en það er heldur ekki hægt að útiloka það. Með frekari rannsóknum telur rannsakandi að svörun við þessu sé mikilvæg til að skilja hvernig það sé hægt að taka þetta bil og útrýma því.
Titel: |
Viðhorfs- og hegðunarbil gagnvart sjálfbærum fatnaði
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Sólveig Þrastardóttir 1996- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|