Hetjur og goð: Heiðinn táknheimur Brennu-Njáls sögu
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Markmið þessarar ritgerðar er að greina hliðstæður og textatengsl milli Brennu-Njáls sögu og norrænna goðsagna. Sýnt verður fram á að textatengsl Njálu og þeirra heimilda sem til eru um norræna goðatrú eru mun sterkari en fræðimenn hafa hingað til áttað sig á. Í fræðunum hefur talsvert verið fjallað um hlutverk siðaskiptanna í Brennu-Njáls sögu og Njálsbrennan túlkuð sem hliðstæða Ragnaraka. Sýnt verður fram á mun víðtækari tengsl þar sem persónur Njálu virka sem staðgenglar norrænu goðanna sjálfra með tilliti til virkni og hlutverks innan frásagnarinnar, lýsinga á skapgerð, útliti og makavali. Síðast en ekki síst verður fjallað um líkindi í eðli ýmissa vopna og gripa sem para saman goð og hetjur beint og mjög sértækt. Leitt er líkum að því að höfundur Njálu hafi vísvitandi nýtt sér heiðinn táknheim til þess að vekja hugrenningatengsl hjá samtímafólki og dýpka skilning lesenda á átökum siðaskiptanna.
Titel: |
Hetjur og goð: Heiðinn táknheimur Brennu-Njáls sögu
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Ásþór Loki Rúnarsson 1999- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|