'Ég er fötluð hinsegin kona og mér blöskraði' : birtingarmyndir margþættrar mismununar í lífi hinsegin fatlaðs fólks
2019
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í þessu verkefni er skoðað hvernig margþætt mismunun birtist í lífi fatlaðs fólks sem skilgreinir sig sem hinsegin og áhrifin sem það óumflýjanlega hefur á líf þess. Fjallað verður um málefnið út frá fræðum og kenningum m.a. um fötlun, femínisma, öráreitni, gagnkynhneigðarhyggju og skaðandi staðalmyndum sem hafa náð að festa sig í sessi í samfélaginu. Þá munum við einnig skoða hið svokallaða Klaustursmál í samhengi við umfjöllunina og hvernig margþætt mismunun birtist í því máli. Í verkefninu verður leitast við því að skoða hvernig samfélagið, bæði meðvitað og ómeðvitað, mismunar þessum hópi fólks á grundvelli fötlunar og kynhneigðar eða kynvitundar. Með þessu móti verður þessi hópur fólks enn frekar jaðarsettur í samfélaginu og rödd þeirra viljandi lækkuð. Mikilvægt er að skoða samtvinnun þess að vera fötluð manneskja og hinsegin, og áhrifin sem samtvinnunin skapar í stað þess að horfa á þessi tvö málefni sitt í hvoru lagi.
Titel: |
'Ég er fötluð hinsegin kona og mér blöskraði' : birtingarmyndir margþættrar mismununar í lífi hinsegin fatlaðs fólks
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Kristín Hulda Þórhallsdóttir 1994- ; Þóra Kristín Reinharðsdóttir 1991- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2019 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|