Af hverju var evrunni hafnað af nokkrum ríkjum Evrópusambandsins?
2016
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í þessari rannsókn er markmiðið að gera grein fyrir þeim sjónarmiðum sem fengið hafa mest vægi í umfjöllun um málefni upptöku evru í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð. Leitað er að raunverulegri ástæðu þess að fyrrgreind Evrópusambandsríki kusu að hafna aðild að myntbandalaginu. Það er skylda fyrir þær þjóðir sem hafa fengið inngöngu í Evrópusambandið að stefna að því að taka nauðsynleg skref til að undirbúa það sem þarf til inngöngu í Evrópska efnahags- og myntbandalagið og þar með taka upp evru. Til að skoða þau sjónarmið sem hæst hefur borið á um þetta málefni var ráðist í leit að greinum sem fjallað hafa um málefnið í hverju þessara landa og var textinn innihaldsgreindur. Alls komu 33 mismunandi sjónarmið fram í greiningunni, þó sum þeirra væru óumflýjanlega tengd að einhverju leyti. Tíðnihæsta sjónarmiðið er það að ekki sé vilji fyrir því að afsala viðkomandi ríki sjálfstæði í peningamálum, en við inngöngu í Efnahags- og myntbandalagið færist stjórn peningamála yfir til Evrópska seðlabankans, enda er fyrri gjaldmiðill lagður niður. Ástæður þess að fyrrgreind lönd hafa komist hjá skyldu sinni til upptöku evru eru undanþágur sem fengnar voru í gegn með samningagerð, neikvæð úrslit þjóðaratkvæðagreiðslna og jafnframt tæknilegur galli á útfærslu reglugerðarinnar. Tilgangur rannsóknarinnar er að koma með fræðilegt sjónarmið í umræðuna á Íslandi um hvaða gjaldmiðill henti þjóðinni best. ; The goal of this research is to investigate the different perceptions that have stood out the most in the discussion around the adoption of the euro in Britain, Denmark and Sweden. The reasons for these nations’ rejection of the European Monetary Union (EMU) are explored. It is a precondition for a nation state’s acceptance to the European Union to take the necessary preliminary steps towards entering the European Monetary Union and adopt the euro. To determine the most salient perspectives on this issue, a search for articles discussing the issue in the aforementioned countries was conducted and the content of the article texts .
Titel: |
Af hverju var evrunni hafnað af nokkrum ríkjum Evrópusambandsins?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Sigurður Eggert Halldóruson 1982 ; Háskólinn á Bifröst |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2016 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|