The legal status of Palestine under international law ; Réttarstaða Palestínu að þjóðarétti
2012
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Réttarstaða Palestínu að þjóðarétti Réttarstaða Palestínu að þjóðarétti hefur í áratugi verið mjög umdeild. Langt er liðið frá því að alþjóðasamfélagið viðurkenndi fyrst rétt Palestínumanna til sjálfsákvörðunarréttar og á síðustu 15-20 árum hefur það einnig viðurkennt rétt Palestínumanna til þess að stofna sitt eigið fullvalda og sjálfstætt ríki. Þrátt fyrir þá staðreynd nýtur Palestína enn ekki óumdeildrar viðurkenningar sem ríki og er ekki fullgildur meðlimur Sameinuðu þjóðanna. Markmið ritgerðar þessarar er að kanna réttarstöðu Palestínu að þjóðarétti. Til þess að veita heildaryfirsýn yfir málið þá er fyrst stuttlega fjallað um sögu Palestínu og ýmsar umdeildar aðgerðir Ísraela í Palestínu. Þá er kannað hvort Palestína uppfylli hin hlutlægu skilyrði þjóðaréttar fyrir tilvist sjálfstæðra ríkja eða þau skilyrði sem tilgreind eru í Montevideo sáttmálanum frá árinu 1933 (þ.e. um fólk, landsvæði, skipulegt ríkisvald og getu til milliríkjasamskipta). Önnur helstu einkenni ríkja eru jafnframt skoðuð, eins og viðurkenning og sjálfstæði auk þess sem einnig er vikið að sjálfsákvörðunarrétti Palestínumanna. Helstu niðurstöður eru þær að Palestína uppfyllir öll þau hefðbundnu skilyrði fyrir tilvist ríkis að þjóðarétti sem lýst er í Montevideo sáttmálananum. Eina „skilyrðið” sem Palestína uppfyllir þó ekki að fullu er „skilyrðið” um sjálfstæði, sem sumir fræðimenn vilja meina að sé í reynd viðbótarskilyrði fyrir tilvist ríkis. Það er hins vegar ein af grundvallarreglum þjóðaréttar að ólögmætar gjörðir ríkja geta ekki skapað rétt þeim til handa (ex injuria jus non oritur) og því getur ólögmætt hernám Ísraela ekki skert lagalegan rétt Palestínu. Það er meginniðurstaða mín í ljósi þeirrar rannsóknar sem hér fylgir að þrátt fyrir að Palestína uppfylli öll skilyrði fyrir tilvist ríkis að þjóðarétti þá njóti Palestína ekki fulls sjálfstæðis vegna hernámsins og pólítískra hagsmuna Ísrael og Bandaríkjanna. ; The Legal Status of Palestine under International Law The question of Palestinian statehood is and has been for decades a .
Titel: |
The legal status of Palestine under international law ; Réttarstaða Palestínu að þjóðarétti
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Elva Björk Barkardóttir 1981 ; Háskólinn í Reykjavík |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2012 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|