Samantekt um flúor
Tannlæknafélag Íslands, 2010
Online
academicJournal
Zugriff:
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) ; Umræða um gagnsemi flúors í tannvernd er ekki ný af nálinni en virkni flúors gegn tannátu hefur verið þekkt í rúma hálfa öld. Þótt enn sé ekki að fullu ljóst hvernig flúor virkar eru áhrifin óumdeild og ekki þekkist neitt annað efni er dregur úr tannátu sem flúor. Talið er að lágur en stöðugur flúorstyrkur í munnholi sé nauðsynlegur til viðhalds heilbrigði tanna. Tannburstun með flúortannkremi að styrkleika a.m.k 0,1% F-, tvisvar sinnum á dag, viðheldur lágmarksflúorstyrk í munnholi og er því afar áhrifamikill þáttur í daglegri vörn gegn tannátu, hjá öllum aldurshópum. Flúor er þátttakandi í því viðgerðarferli sem stöðugt er í gangi við tannyfirborð auk þess sem hann hefur truflandi áhrif á starfsemi þeirra baktería sem valda tannátu. Verkun hans er staðbundin á yfirborði tanna - og varnandi áhrif þau sömu hjá öllum aldurshópum.
Titel: |
Samantekt um flúor
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Guðmundsdóttir, Hólmfríður |
Link: | |
Veröffentlichung: | Tannlæknafélag Íslands, 2010 |
Medientyp: | academicJournal |
ISSN: | 1018-7138 (print) |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|