„Maður stoppar ekki ferðamanninn“ Rannsókn um félagsleg þolmörk
2024
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Stuðlagil er sjálfsprottinn ferðamannastaður sem varð vinsæll á stuttum tíma. Heimamenn sem búa við gilið fengu óumbeðnir stórt verkefni upp í hendurnar. Þeir gerðu sitt besta til að taka á móti fjöldanum með því að byggja upp innviði án nokkurrar utanaðkomandi aðstoðar í upphafi. Fjöldi ferðamanna sem skoðar gilið hefur aukist ár frá ári og er ferðamennskan orðin hluti af daglega lífi heimamanna. Markmið rannsóknar er að kanna upplifun og viðhorf heimamanna gagnvart fjölgun ferðamanna við Stuðlagil. Reynsla þeirra verður rannsökuð út frá hvað þeir hafa upplifað síðan staðurinn varð vinsæll. Spurt verður hvernig heimamenn upplifa heimilið sitt svo nálægt Stuðlagili og hvernig það er að fá það verkefni upp í hendurnar að sinna vinsælum ferðamannastað. Við framkvæmd rannsóknar verður notast við eigindlega aðferðafræði sem felst í hálfstöðluðum viðtölum við landeigendur við Stuðlagil. Viðtölin eru greind og sett í samhengi við fræðilegan bakgrunn. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að heimamenn hafa aðallega jákvæð viðhorf til ferðamannanna. Þó hefur uppbygging svæðisins verið erfitt verkefni þar sem þeir upplifðu sig eina á báti í mörg ár. Nú er verið að vinna að rammaskipulagi á svæðinu við Stuðlagil með sveitarfélaginu Múlaþingi og fleiri aðilum þar sem lögð er áhersla á góða innviðauppbyggingu. Mikilvægt er að horfa til og byggja á staðbundinni þekkingu en þó er ljóst að heimamenn þurfa aðstoð og reiða sig á sérfræðiþekkingu á ákveðnum þáttum þegar kemur að byggja upp sjálfsprottinn ferðamannastað. ; Stuðlagil is a spontaneous (is. sjálfsprottinn) tourist attraction that became popular in a very short time. Residents that live near the canyon got a big assignment without asking for it. Alone they did their best to welcome the tourists by building infrastructure without any assistance in the beginning. The numbers of tourists that visit the canyon continues to grow year by year and tourism by Stuðlagil has become a part of the local’s daily life. The thesis aims to investigate their experience and attitude ...
Titel: |
„Maður stoppar ekki ferðamanninn“ Rannsókn um félagsleg þolmörk
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Sigríður Hlíðkvist G Kröyer 1998- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2024 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|