Þróun á upplýsingagjöf varðandi sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð: Hvernig hefur upplýsingagjöf varðandi sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð þróast á Íslandi?
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í þessari ritgerð er fjallað um hugtökin sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í sögulegu samhengi. Fjallað verður um þróun í þeim málum hjá stjórnvöldum og fyrirtækjum á alþjóðavísu á undanförnum árum, bæði hvað varðar markmið og reglugerðir sem og þróun til framtíðar. Eftir að skýrsla Sameinuðu þjóðanna, sem ber heitið „Okkar sameiginlega framtíð“ (Brundtland skýrslan) kom út árið 1987 varð eftirsóknarvert fyrir fyrirtæki að gerast „græn“ fyrirtæki. Skýrslan tók einkum fyrir hlýnun jarðar og hækkun sjávarstöðu og setti þessi málefni í forgrunn umræðu um umhverfismálefni. Árið 2015 samþykktu svo nærri öll lönd heims að leggja sitt af mörkum til þess að berjast gegn hnattrænni hlýnun og var þessi sáttmáli nefndur Parísarsáttmálinn. Skoðað er sérstaklega hvernig stjórnvöld og fyrirtæki á Íslandi hafa tekið þátt og breytt sínum háttum, ekki síst með hagsmuni umhverfisins að leiðarljósi. Tilkoma Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrð og sjálfbærni, bjó til vettvang fyrir fyrirtæki til að sækja sér þekkingu og aðstoð til að koma þessu inn í sína starfsemi. Að lokum var skoðuð nálgun á þessi málefni hjá tveimur fyrirtækjum , Brim og Krónunni, sem eru í fararbroddi hér á landi í að tileinka sér þessa nálgun í starfsemi sinni. Þau hafa gert ráðstafanir til að minnka kolefnisfótspor sitt, dregið úr notkun óumhverfisvænna orkugjafa og minnkað sóun á verðmætum. Reglugerðir varðandi þessi málefni eru í stöðugri þróun og þær sem eru í smíðum munu í auknum mæli gera það að skyldu hjá sífellt fleiri fyrirtækjum að vinna að sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð á skipulegan og mælanlegan hátt svo hægt sé að fylgjast með heildarárangri og gera áætlanir til framtíðar út frá því.
Titel: |
Þróun á upplýsingagjöf varðandi sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð: Hvernig hefur upplýsingagjöf varðandi sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð þróast á Íslandi?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Sigrún Linda Baldursdóttir 2000- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2022 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|