Túlkun á túlkunarreglunni samkvæmt 1. mgr. 36. gr. b. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga
2024
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Túlkunarreglur samningaréttarins skiptast í þrennt: andskýringarreglan, meðskýringarreglan og sérstök túlkunarregla samkvæmt 1. mgr. 36. gr. b. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, hér eftir nefnd samningalög. Lagaákvæðið mælir fyrir um að skriflegur samningur, sem atvinnurekandi gefur neytanda kost á, skal vera skýr og skiljanlegur. Komi upp vafi um merkingu samnings, sem nefndur er í 1. mgr. 36. gr. a. laganna, skal túlka samninginn neytandanum í hag. Ákvæðið var sett með lögum nr. 14/1995 um breytingu á samningalögunum, og reglan er eina lögfest túlkunarregla í íslenskan rétt. Lagasetningin tengist samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, nánar tiltekið svokölluðum viðbótarpakka sem inniheldur meðal annars tilskipun ráðsins 93/13/EBE frá 5. apríl 1993 um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum, hér eftir nefnd sem tilskipun 93/13/EBE eða einfaldlega tilskipunin.1 Markmið laganna er fyrst og fremst að tryggja framkvæmd þeirra ákvæða tilskipunarinnar sem eru einkaréttarlegs eðlis, koma í veg fyrir röskun á samkeppni og jafnframt veita vernd til handa neytendum.2 Í þessu samhengi er óhjákvæmilegt að taka til skoðunar helstu sjónarmið við túlkun á túlkunarreglunni samkvæmt 1. mgr. 36. gr. b. samningalaga. Litið verður til meginreglna samningaréttarins. Þá verður gerð grein fyrir inntaki annarra ólögfestra túlkunarreglna sem hafa verulega þýðingu við afmörkun á gildissviði og réttaráhrifum túlkunarreglunnar. Stefnt er enn fremur að því að lagaákvæðið verði réttilega túlkað í samræmi við markmið þess og tilgang tilskipunarinnar. Í 2. kafla ritgerðarinnar verður fjallað um meginreglur samningaréttarins. Í 3. kafla eru helstu hugtök útskýrð sem lúta að því hver sé neytandi og hver sé atvinnurekandi. Þá verður hugtakið neytendakaup skýrt til að afmarka nánar gildissvið túlkunarreglunnar samkvæmt 1. mgr. 36. gr. b. samningalaga. Í 4. kafla verður gerð grein fyrir hugtakinu staðlaðir samningsskilmálar. Í 5. kafla verður fjallað um hefðbundna túlkun samninga og ólögfestar túlkunarreglur. Í 6. ...
Titel: |
Túlkun á túlkunarreglunni samkvæmt 1. mgr. 36. gr. b. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Vuong The Pham 1987- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2024 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|