Ferðin til tunglsins: Um íslam í Evrópu og sjálfsmyndavanda samtímans ; Man on the Moon: On Islam in Europe and identity politics
2013
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Þegar kalda stríðið rann sitt skeið á enda urðu straumhvörf í alþjóðastjórnmálum er hið einfalda viðmið sem áður skipti heiminum í grundvallaratriðum í tvennt (kapítalismi/kommúnismi) lagðist af. Um leið hóf margbreytileikinn innreið sína og síðan hefur hugtakið hnattvæðing í auknum mæli verið notað til að lýsa heiminum, en það felur meðal annars í sér flókin tengsl og vensl ólíkra menningarheima, einstaklinga og hugmynda. Francis Fukuyama skrifaði við þessar aðstæður grein sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif og hratt af stað glímu hugmynda sem enn stendur yfir. Í greininni, sem ber yfirskriftina The End of History? heldur höfundurinn því fram að mannkynið sé komið að endimörkum heimssögunnar og að frjálslynt lýðræði sé sú hugmyndafræði sem framvegis muni skilgreina samfélagslegan og pólitískan veruleika og gera ólíkum aðilum kleift að semja um að lifa í friði og spekt sem jafningjar í sameinuðum heimi. Sem andsvar við þessum hugmyndum skrifaði fyrrum kennari Fukyama, Samuel P. Huntington, aðra grein sem haft hefur jafnvel enn meiri áhrif. Sú ber titilinn Clash of Cviliszations? og í henni leitast Huntington við að færa rök fyrir því að kenning Fukuyama um endalok heimssögunnar og sameinaðan heim sé röng. Frjáslynt lýðræði og útópían um samvinnu muni ekki skilgreina veruleika okkar í framtíðinni heldur óumflýjanleg átök milli menningarheima og helstu átakalínur komi til með að vera milli hins kristna Vesturs og heims íslam. Báðir þróuðu höfundarnir hugmyndir sínar áfram og gáfu út á bók fáum árum síðar. Í kjölfar 11. september 2001 og þeirrar atburðarásar sem þá fór af stað þótti mörgum sem kenning Huntingtons hefði verið sönnuð og umræðan um óumflýjanleg átök milli menningarheima fékk byr undir báða vængi, bæði í Vestri og Austri. Stríðið gegn hryðjuverkum og vandi múslimasamfélaga í Evrópu við að aðlagast var þá talin ein birtingarmynd þessara óhjákvæmilegu átaka og smátt og smátt fjaraði undan almennri trú leikra og lærðra á möguleikann á farsælli sambúð fólks af ólíkum uppruna í fjölmenningarsamfélögum .
Titel: |
Ferðin til tunglsins: Um íslam í Evrópu og sjálfsmyndavanda samtímans ; Man on the Moon: On Islam in Europe and identity politics
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Anna Lára Steindal 1970 ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2013 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|