Upplifa stjórnendur í fjármálaumhverfi á Íslandi vinnutengda streitu?
2020
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í nútímasamfélagi er álag í starfi alla jafna óumflýjanlegt vegna þeirra krafna sem gerðar eru til einstaklinga í vinnuumhverfinu. Álag getur verið jákvætt í hóflegu magni því það getur haft hvetjandi áhrif á starfsfólk fyrirtækis þegar tekist er á við nýjar áskoranir og af þeim dreginn lærdómur. Vinnutengd streita á sér aftur á móti stað þegar kröfur eða væntingar í starfi eru umfram getu og kunnáttu starfsfólks og verða því einstaklingum ofviða. Streita hefur þó ekki einungis áhrif á andlega og líkamlega heilsu starfsfólks heldur einnig á fyrirtæki, sem og á stofnanir. Í rannsókn þessari var leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: „Upplifa stjórnendur í fjármálaumhverfi á Íslandi vinnutengda streitu?“. Til að leita svara við spurningunni var framkvæmd eigindleg rannsókn þar sem tekin voru hálfstöðluð viðtöl við fjóra einstaklinga sem ýmist eru núverandi eða fyrrum stjórnendur fjármálafyrirtækja. Sýndu viðtölin fram á misjafna upplifun viðmælenda af vinnuumhverfinu sem og eigin upplifun þeirra af álagi og vinnutengdri streitu. Þar sem um eigindlega rannsókn, með takmarkað úrtak, er að ræða er ekki hægt að fullyrða að niðurstöður þessar eigi almennt við um stjórnendur í fjármálaumhverfi á Íslandi. Þó sé ljóst að þeir upplifi einhvers konar streitu, hver á sinn hátt.
Titel: |
Upplifa stjórnendur í fjármálaumhverfi á Íslandi vinnutengda streitu?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Elísa Björg Gunngeirsdóttir 1995- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2020 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|