Félagsleg einangrun meðal eldra fólks: Tengsl við sjálfsmat á heilsu og hlutlæga heilsu ; Social isolation among older adults: Association with self-rated health and objective health
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Þjóðir standa frammi fyrir ýmsum áskorunum sem fylgja aðlögun að breyttri aldurssamsetningu en talið er að fjöldi aldraðra muni tvöfaldast á næstu áratugum. Félagsleg einangrun er algengt vandamál meðal aldraðra en hún einkennist af skorti af félagslegum samskiptum, sem getur haft slæm áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Aldurstengdar heilsufars breytingar eru óumflýjanlegar en þó eru aldraðir, líkt og aðrir, misvel á sig komnir hvað varðar hlutlæga heilsu. Sjálfsmat á heilsu vísar til skynjunar og mats einstaklings á eigin heilsu, óháð hlutlægri heilsu hans. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort að annars vegar hlutlæg heilsa og hins vegar sjálfsmat á heilsu hefði tengsl við félagslega einangrun meðal eldra fólks. Þrátt fyrir háa tíðni og þær afleiðingar sem félagsleg einangrun getur haft á lífsgæði aldraðra er félagsleg einangrun tiltölulega lítið rannsökuð. Félagsleg einangrun og tengsl hennar við sjálfsmat á heilsu og hlutlæga heilsu hafa ekki verið könnuð saman áður. Í þessari rannsókn var notast við fyrirliggjandi gögn úr Health and Retirement Study frá árinu 2020. Þátttakendur voru samtals 485 einstaklingar á aldrinum 67 til 90 ára. Tilgáturnar sem lagðar voru fram eru eftirfarandi: (1) Að félagsleg einangrun sé meiri hjá þeim sem meta heilsu sína slæma heldur en hjá þeim sem meta heilsu sína góða, (2) að félagsleg einangrun sé meiri hjá þeim sem eru við slæma hlutlæga heilsu heldur en hjá þeim sem eru við góða hlutlæga heilsu, (3) að félagsleg einangrun sé meiri hjá þeim sem meta heilsu sína slæma og hafa slæma hlutlæga heilsu, heldur en hjá þeim sem eru við slæma hlutlæga heilsu en upplifa heilsu sína sem góða. Helstu niðurstöður sýndu að tengsl voru á milli sjálfsmats á heilsu og félagslegrar einangrunar. Út frá því má álykta að eftir því sem sjálfsmat á heilsu er verra að þá er félagsleg einangrun meiri. Ekki voru tengsl á milli meðalfjölda sjúkdóma og félagslegrar einangrunar. Niðurstöður þessarar rannsóknar varpa ljósi á áhættuþætti félagslegrar einangrunar meðal aldraðra. ; Nations ...
Titel: |
Félagsleg einangrun meðal eldra fólks: Tengsl við sjálfsmat á heilsu og hlutlæga heilsu ; Social isolation among older adults: Association with self-rated health and objective health
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Ágústa Katrín Ólafsdóttir 1997- ; Ragnheiður Özurardóttir 1998- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2022 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|