Sprotafyrirtæki á Íslandi: Upplifun íslenskra frumkvöðla á mistökum við eigin rekstur
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Ritgerð þessi fjallar um hver upplifun frumkvöðla er á mistökum sem geta komið fyrir í fyrirtækjarekstri og jafnframt hvaða lærdóm hægt sé að draga af þeim. Upplýsingar um viðfangsefnið voru að mestu fengnar frá erlendum greinum og rannsóknum. Farið verður yfir helstu hugtök sem koma að frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum, algengum ástæðum fyrir mistökum í rekstri og mikilvægi þess að geta dregið lærdóm af mistökum. Í rannsókn þessari var notast við eigindlega aðferðafræði til þess að fá innsýn inn í upplifun frumkvöðla á viðfangsefninu. Niðurstöður fengnar með eigindlegri rannsókn gefa vísbendingu sem útskýrir ferla og mynstur mannlegrar hegðunar sem henta umfjöllun sem þessari. Rannsakandi tók viðtöl við fimm frumkvöðla sem allir höfðu reynslu af rekstri fyrirtækja þar sem mistök komu upp og lærdómur dregin af þeim. Rannsóknarspurningin sem lögð var fyrir í verkefninu var ein og er hún eftirfarandi: Hvernig upplifa frumkvöðlar helstu mistök sem þeir hafa gert við það að stofna fyrirtæki og hvaða lærdóm hafa þeir dregið af þeim? Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mistök eru óumflýjanleg líkt og kannski kemur fæstum reyndum frumkvöðlum á óvart. Það skiptir hins vegar máli að geta dregið lærdóm af mistökum og tekið við gagnrýni á uppbyggilegan hátt. Mistök eiga ekki að vera litið á sem örlög fyrirtækis, þótt það getur leitt til þess ef ekki séu gerðar ráðstafanir. Mistök segja frumkvöðlunum einfaldlega hvað virkar og hvað virkar ekki. Það helsta sem niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna voru mistök sem komu að liðsvanda, þar með talið samskiptaörðugleikar, traust og ólík framtíðarsýn. Fræðilegi hluti ritgerðar tekur mið af þessum þáttur þar sem stuðst var við erlenda rannsókn sem fór inn á helstu þætti sem valda því að fyrirtæki mistakast, þar kom fram að liðsvandi var ein af helstu ástæðum fyrir mistökum. Þrátt fyrir að rannsóknin var með fimm manna úrtaki þá ríkti samhljómur milli rannsóknarinnar og erlendu rannsóknina sem stuðst var við.
Titel: |
Sprotafyrirtæki á Íslandi: Upplifun íslenskra frumkvöðla á mistökum við eigin rekstur
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Sölvi Steinn Sigurðsson 2001- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|