Reynsla íslenskra fyrirtækja af Microsoft Power BI
2020
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Fyrirtæki búa yfir gríðarlegu magni gagna og erfitt getur verið að greina og nýta upplýsingarnar sem þau geyma. Viðskiptagreindartól veita fyrirtækjum leið til þess að halda utan um og greina þessi gögn, en þau geta verið kostnaðarsöm og erfitt að sanna arðbærni þeirra. Ásamt gríðarlega miklu úrvali af viðskiptagreindartólum getur valið verið erfitt. Rannsóknir hafa sýnt að innleiðing viðskiptagreindartóla skili ábötum til fyrirtækja, en einnig eru margar áskoranir sem geta komið upp. Þessi ritgerð miðar að því að veita stjórnendum frekari skilning á hvað viðskiptagreind er og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér hana við ákvörðunartöku með því að læra af reynslu valinna íslenskra fyrirtækja. Viðskiptagreindartólið Microsoft Power BI hefur verið leiðandi á markaði og vildu rannsakendur kanna áhrif þess. Með fyrri rannsóknir í huga eru fjórir hlutar skoðaðir með tilliti til innleiðingar og nýtingu tólsins. Þeir eru ábatar, áskoranir, innleiðingarferli og aðgangsstýringar. Viðskiptagreind er skilgreind sem regnhlífarhugtak sem lýsir hugtökum og aðferðum til þess að bæta ákvarðanatöku í viðskiptum. Tekin voru hálfopin viðtöl við sjö fyrirtæki á Íslandi, viðmælendur voru valdnir með hentugleikaúrtaki og einu forsendur fyrir þátttöku voru nýting Power BI. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja við niðurstöður fyrri rannsókna að mörgu leyti, en fjárhagslegur ávinningur af nýtingu tólsins virðist ekki vera í fyrirrúmi. Fyrirtæki eru greinilega að finna fyrir árangri viðskiptagreindartóla og helstu ábatar sem viðmælendur nefna eru betri yfirsýn yfir gögnin sín og fljótari viðbragðstími. Áskoranir eru óumflýjanlegar við innleiðingu nýs kerfis en þær komu ekki að sök. Enn frekar væri áhugavert að kanna hvort það sé munur á niðurstöðum eftir hvaða viðskiptagreindartól fyrirtæki velja.
Titel: |
Reynsla íslenskra fyrirtækja af Microsoft Power BI
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Kolbrún Hafdísardóttir 1996- ; Sigrún Elva Reynisdóttir 1996- ; Háskólinn í Reykjavík |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2020 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|