„Þú heyrir mig alveg öskra af gleði þegar ég skíða“ Hvati og upplifun fjallaskíðafólks
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Fjallaskíði hafa notið aukinna vinsælda á síðustu árum og býður íslenskt landslag upp á góðan leikvöll til slíkrar iðkunar. Ævintýraferðamennska getur verið samblanda af íþróttum, útivist, ferðalögum, framandi umhverfi og ánægju. Slík ævintýraferðamennska felur í sér áreynslu og hún gjarnan stunduð í víðernum sem eykur við áhættuna. Sýnt hefur verið fram á að bæði áhætta og óvissa um hvað aðstæðurnar bera í skauti sér er einn stærsti þátturinn sem laðar að ferðamenn til að stunda ævintýraferðamennsku en fjölmargar ástæður geta legið að baki hvata þeirra. Fjallaskíði er ein tegund ævintýraferðamennsku sem felur í sér að ganga á fjöll og skíða niður en áhættur er óumflýjanlegur þáttur. Markmið þessarar rannsóknar er að fá innsýn í hvers vegna fólk stundar fjallaskíði og kanna hverjir eru helstu öryggis og áhættuþættir í fjallaskíðaferðum. Í fræðilegum hluta rannsóknarinnar er fjallað um ævintýraferðamennsku og verður hún skoðuð í tengslum við andlega heilsu og áhættuskynjun en einnig verður farið yfir sögu fjallaskíðaferðamennsku. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafærði og tekin voru viðtöl við sex einstaklinga sem skipuleggja og stunda fjallaskíði á eigin vegum. Niðurstöður sýndu að helstu hvatar fólks til að stunda fjallaskíði séu náttúran, útsýnið, bætt andleg líðan, ferðalög og félagsskapur. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að helstu áhættur og öryggisþættir sem iðkendur upplifa í fjallaskíðaferðum séu snjóflóðahætta og veður, að lesa í landslag, öryggisbúnaður og ferðafélagar. ; Backcountry skiing has become increasingly popular in recent years, and the Icelandic landscape offers a good playground for such practice. Adventure tourism can be a combination of sports, outdoor activities, travel, exotic environments, and pleasure. Such adventure tourism involves effort, and it is often practiced in the wilderness, which increases the risk. It has been shown that both risk and uncertainty about what the situation holds is one of the biggest factors that attract tourists to adventure tourism, but there can be ...
Titel: |
„Þú heyrir mig alveg öskra af gleði þegar ég skíða“ Hvati og upplifun fjallaskíðafólks
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Hilda Steinunn Egilsdóttir 1999- ; Kristín Elísabet Skúladóttir 1995- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|