Upplifun lögreglumanna á starfsumhverfinu í almennu deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
2024
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í upplifun þeirra lögreglumanna sem starfa í almennu deild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á starfsumhverfi sínu og hvað væri hægt að gera til þess að bæta það. Síðastliðin ár virðist hafa orðið einhver breyting á starfsumhverfi innan almennu deildarinnar og hefur starfsmannavelta til dæmis aukist töluvert. Lögreglumenn í almennu deildinni starfa í mikilli nálægð við hinn almenna borgara og því litast oft skoðun og traust almennings á lögreglunni í heild af vinnubrögðum deildarinnar. Reynsla og þekking virðist hafa farið minnkandi í deildinni og hátt hlutfall ófaglærðra lögreglumanna er viðvarandi vandamál. Því á starfsumhverfið undir högg að sækja en undirstaða velgengni í starfi er gott og heilbrigt starfsumhverfi. Við gerð rannsóknarinnar var beitt eigindlegri rannsóknaraðferð þegar tekin voru hálfopin viðtöl við níu viðmælendur. Þeir voru allir starfandi lögreglumenn í almennu deildinni hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og með að lágmarki 5 ára starfsreynslu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að starfsumhverfi almennu deildarinnar á höfuðborgarsvæðinu þyrfti á úrbótum að halda og að fjölmargir þættir vægju þar þungt, til að mynda slæmir skipulagsþættir, mikil starfsmannavelta, ófaglegir stjórnunarhættir, skortur á tækifærum til starfsþróunar, móttaka nýliða og almennt álag og streita í starfi. Upplifun viðmælenda var að þessir þættir væru óumflýjanlegir og oft og tíðum óviðráðanlegir. Þeir töldu að þessi mikla starfsmannavelta og mannekla í deildinni kæmu í kjölfar slæmra skipulagsþátta og að þeir væru líka aðaluppspretta álags, streitu og hárrar tíðni ófaglærðra lögreglumanna innan deildarinnar. Viðmælendum varð tíðrætt um ófaglega stjórnunarhætti og nefndu þeir meðal annars ófaglegar ráðningar, spillingu og að stjórnun væri heilt yfir ábótavant. Nokkrir viðmælendur sögðu tækifæri til starfsþróunar engin í deildinni og að engin formleg starfsþróunarstefna væri hjá embættinu. Þeir töldu illa staðið að móttöku nýrra starfsmanna og að ...
Titel: |
Upplifun lögreglumanna á starfsumhverfinu í almennu deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Sif Þórisdóttir 1997- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2024 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|