Íþróttir og félagstengsl : rannsókn á íþróttaiðkun og félagslegri stöðu og tengslum þeirra meðal framhaldsskólanema á Akureyri
2021
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í þessari rannsókn voru tengsl íþróttaiðkunar og félagslegrar stöðu könnuð meðal framhaldsskólanema á Akureyri. Rannsóknir og fyrri þekking benda til að iðkun íþrótta fylgi bæði félagslegur og andlegur ávinningur. Tengsl þessara þátta eru svo gott sem órjúfanleg þar sem íþróttir eru iðkaðar af mannfólki sem hefur tilfinningar, hugsanir og sín eigin persónueinkenni. Þegar fólk kemur saman í þeim tilgangi að iðka íþróttir er því óhjákvæmilegt að samskipti og tjáning eigi sér stað því það er eðli okkar sem félagsverur. Þegar félags- og tilfinningaverur keppast svo um sigur, standa saman fyrir eitthvað sem skiptir máli eða styðja hverja aðra af innlifun er kveikjan að tengslum óumflýjanleg. Þekkt eru heilsubætandi áhrif íþrótta en þar sem þær eru einnig upplyftandi fyrir bæði líkama og sál eru þær grundvöllur sem gerir fólk opnara fyrir tengslamyndunum. Á unglingsárum breytist margt og eru tengsl og tengslamyndun stór hluti af því að vegna vel á þeim tíma. Þá geta íþróttir hjálpað til við tengslamyndun og viðhaldið félagslegri stöðu meðal jafningja. Því var markmið rannsóknarinnar að rannsaka hver tengsl íþróttaiðkunar og félagslegrar stöðu væru meðal framhaldsskólanema á Akureyri. Ekki hefur rannsókn á þessum tengslum verið framkvæmd áður á Íslandi. Var rannsóknin megindleg og voru þátttakendurnir n = 256 úr þýði 1422 framhaldsskólanema. Bentu niðurstöður til að íþróttaiðkun ætti marktæk tengsl við félagslega þætti. Íþróttaiðkendur upplifðu sig síður einmana og frekar félagslega sterka, voru nánari öðrum á sínu reki og áttu nánari jafningjatengsl en þeir sem ekki iðkuðu íþróttir með íþróttafélagi. ; In this study the relations between sports participation and social status is examined among upper secondary school students in Akureyri. Former research and knowledge imply that participation in sports can lead to both social and psychological gain. The relation between these factors are virtually inseperable as sports are performed by humans that have feelings, thoughts and their own characteristics. Therefore when ...
Titel: |
Íþróttir og félagstengsl : rannsókn á íþróttaiðkun og félagslegri stöðu og tengslum þeirra meðal framhaldsskólanema á Akureyri
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Guðbjörn Hólm Veigarsson 1990- ; Háskólinn á Akureyri |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2021 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|