„Þetta er hjálpartæki ekki ljósmóðir, það er ekkert sem kemur í staðinn“. Reynsla ljósmæðra af miðlægri hjartsláttarhlustun.
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Bakgrunnur: Með tilkomu Pinard trépípunnar í lok 19. aldar varð hlustunarpípan aðaltæki ljósmæðra til að meta hjartslátt fósturs. Þróun í tækni til að hlusta eftir og meta hjartslátt fósturs hefur síðan leitt til notkunar á doppler og mónitora í fæðingarhjálp. Síðustu áratugi hefur miðlæg hjartsláttarhlustun fósturs verið tekin upp á mörgum fæðingardeildum en takmörkuð þekking er á áhrifum þess á útkomu fæðinga, vinnulagi og vinnuumhverfi ljósmæðra. Tilgangur: Að kanna reynslu og viðhorf ljósmæðra sem vinna á fæðingarvakt Landspítala af því að vinna með miðlæga hjartsláttarhlustun fósturs (Milou). Aðferð: Rannsóknin er eigindleg rannsókn þar sem tekin voru rýnihópaviðtöl við 18 ljósmæður í þremur rýnihópum. Tilgangsúrtak var notað og leitast við að fá innsýn í reynslu og viðhorf ljósmæðra af notkun á miðlægri vöktun bæði þeirra sem voru með langa starfsreynslu og þeirra sem voru óreyndari. Viðtölin voru greind með innihaldsgreiningu Niðurstöður: Við greiningu gagna kom í ljós eitt yfirþema og sjö undirþemu. Yfirþemað var: Skjárinn hefur áhrif á allt og snerust undirþemun sex í kringum þetta þema en þau eru: 1) Undir eftirliti, þessi vökulu augu, 2) skilaboðin á vaktina, 3) óumbeðnar heimsóknir, 4) samvinnan skiptir öllu, 5) við verðum að passa yfirsetuna, 6) samábyrgðin og 7) tæknin er komin til að vera. Ályktun: Vísbendingar eru um að innleiðing á miðlægri hjartsláttarhlustun hafi áhrif á starfshætti ljósmæðra á fæðingarvakt Landspítala og faglegt sjálfstæði þeirra. Ljósmæðurnar reyna að aðlagast þeirri breytingu að vinna með miðlæga hjartsláttarhlustun fósturs í fæðingu en helstu áskornir virðast felast í að verja konu í fæðingu fyrir óþarfa truflun og að vernda yfirsetu ljósmæðra. Lykilorð: miðlæg hjartsláttarhlustun fósturs, ljósmæður, reynsla, viðhorf, rýnihópar, eigindleg rannsókn ; Background: When the Pinard stethoscope came into play at the end of the 19th century, the stethoscope became the primary tool for midwives to assess the fetal heartbeat. The advancement in technology to listen for and assess ...
Titel: |
„Þetta er hjálpartæki ekki ljósmóðir, það er ekkert sem kemur í staðinn“. Reynsla ljósmæðra af miðlægri hjartsláttarhlustun.
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Brynja Pála Helgadóttir 1964- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|