Áhrif afnáms lagaákvæða um uppreist æru
2021
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Þessi ritgerð fjallar um áhrif afnáms lagaákvæða um uppreist æru en þau voru afnumin úr almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, árið 2017. Í kjölfarið var farið í heildarendurskoðun á þeim lögum sem uppreist æru hafði áhrif á. Sú vinna skilaði frumvarpi sem varð að lögum nr. 141/2018 sem tóku gildi 1. janúar 2019. Í ákvæðum almennra hegningarlaga, sem tilgreindu óflekkað mannorð og uppreist æru, var tilgreint að ef einstaklingur hlýtur óskilorðsbundinn refsidóm, sem er fjórir mánuðir til eitt ár, fékk viðkomandi sjálfkrafa óflekkað mannorð og öll borgaraleg réttindi á ný að fimm árum liðnum frá afplánun. Ef brot fól í sér refsidóm, sem var eitt ár eða lengur, gat einstaklingur sótt um uppreist æru fimm árum eftir afplánun og fékk þá öll borgaraleg réttindi á ný ef umsókn var samþykkt. Víðs vegar í löggjöfinni var gerð krafa um óflekkað mannorð, til að vera kjörgengur til Alþingis, fá ákveðin réttindi eða gegna störfum og embættum. Eftir heildarendurskoðun laganna er ekki lengur talað um óflekkað mannorð sem skilyrði, nema til kjörgengis vegna ákvæðis þess efnis í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Eftir heildarendurskoðun laganna, sem höfðu áhrif á uppreist æru, er nú talað um að einstaklingur megi ekki hafa hlotið refsidóm eftir að hann varð fullra 18 ára. Í sumum sérlögum er nánar tilgreint að einstaklingur hlýtur réttindi á ný að fimm árum liðnum frá afplánun en í öðrum lögum eru gerðar ríkari kröfur. ; This dissertation focuses on the effect of the abolition of restoration of honor, which was abolished from the General Penal Code, no. 19/1940 in 2017. Following this, a comprehensive review was carried out of other laws that affected restoration of honor, which became act no. 141/2018 and entered into force on January 1st, 2019. The provision of the General Penal Code, which specified an unblemised reputation and restoration of honor, stated that if an individual received an unconditional sentence for four months up to one year, that person automatically received an unblemished reputation and got ...
Titel: |
Áhrif afnáms lagaákvæða um uppreist æru
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Jóhanna Ósk Jónasdóttir 1990- ; Háskólinn á Akureyri |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2021 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|