Streymisstríðið mikla: Er hin drjúga samkeppni streymisveitna að ýta undir tískubólu? ; The Streaming Wars: Is the Intense Competition Between Streaming Services Creating a Bubble?
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Vissir þú að á árinu 2022 tapaði Netflix áskrifendum í fyrsta skipti í tíu ár? Áskrifendatap þeirra getur leitt til neikvæðra keðjuverkandi áhrifa á streymismarkaðinn í heild sinni. Þessi ritgerð fjallar um streymisstríðið sem herjar á neytendur og erlend kvikmyndafyrirtæki. Reynt verður að spá fyrir um framtíðarþróun streymismarkaðarins og svara þeirri spurningu hvort streymisveitur séu einungis tískufyrirbæri nútímans. Stjórnun, áherslur og aðferðir erlendra kvikmyndafyrirtækja voru borin saman. Í svokölluðu Rauðahafi berjast fyrirtæki um núverandi eftirspurn á markaði og því verða skipulagsheildir að aðgreina sig til að ná athygli neytandans. Kom í ljós að þrjár erlendar streymisveitur voru að stinga keppinauta sína af vegna sterks alþjóðlegs samkeppnisforskots. Netflix, Disney og Amazon eru risarnir á streymismarkaði, aðrar streymisveitur sem keppa við risana þjóna færri mörkuðum og/eða hafa veikara vörumerki og ná því ekki að grípa eins stóran notendahóp. Vegna offramboðs á streymismarkaði flakka margir neytendur á milli streymisveitna eða notfæra sér ólöglegt streymi. Til að koma í veg fyrir áskrifendatap eru flestöll erlendu kvikmyndafyrirtækin að innleiða róttækar skipulagsbreytingar eins og að kynna til leiks ódýrari áskriftarflokka með auglýsingum og minna sjónvarpsefni. Áhersla Netflix næstu árin er að halda útgjöldum stöðugum, Warner Bros. Discovery leggur minni áherslu á streymisveitu sína og vill notfæra sér aðrar tekjulindir á meðan Disney sér ekki sólina fyrir streymisveitu sinni og leggur áherslu á magn umfram gæði. Ekki er hægt að segja blákalt að streymisveitur séu einungis tískufyrirbæri nútímans. Stjórnendur erlendra kvikmyndafyrirtækja og streymisveitna notfæra sér þó mikið af sömu aðferðum sem sjónvarpsveitur með línulega dagskrá áttu hugmyndina að. Haldi græðgi kvikmyndafyrirtækja áfram gætu streymisveitur þeirra lent undir. Vegna offramboðs á streymismarkaði má gera ráð fyrir að samrunar erlendra kvikmyndafyrirtækja og streymisveitna muni aukast. Hápunkti streymis hefur ekki verið náð en ...
Titel: |
Streymisstríðið mikla: Er hin drjúga samkeppni streymisveitna að ýta undir tískubólu? ; The Streaming Wars: Is the Intense Competition Between Streaming Services Creating a Bubble?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Bjarni Geir H. Halldórsson 1999- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2022 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|