Menningargreind og frumkvöðlahugsun stjórnenda í alþjóðafyrirtækjum
2018
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Fyrr eða síðar verður alþjóðavæðing óumflýjanlegur raunveruleiki margra fyrirtæki á nútímamarkaði. Það er því mikilvægt að hafa starfsfólk sem getur á í samskiptum við fólk frá fjölbreyttum menningarheimum. Það eykur líkur á farsælum viðskiptum og velgengni fyrirtækisins. Hæfnin til að eiga í farsælum samskiptum við einstaklinga með annan menningarlegan bakgrunn, og gegna hlutverki sínu á árangursríkan hátt í menningarlegu fjölbreyttu umhverfi og aðstæðum er skilgreining á menningargreind (e. cultural intelligence) Markmið þessa verkefnis var annars vegar að leggja mat á hvort tengsl séu á milli menningargreindar og frumkvöðlahugsunar stjórnenda innan alþjóðafyrirtækja og hins vegar að skoða hvaða þáttur menningargreindar, sýnir mestu fylgnina við frumkvöðlahugsun. Verkefninu má skipta í tvennt, fræðilegt yfirlit og rannsókn. Notast var við fyrirfram fengin gögn en þátttakendur upphaflegu rannsóknarinnar voru stjórnendur í alþjóðafyrirtæki sem hefur höfuðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem spuningakönnun var lögð fyrir. Fjögurra þátta skali menningargreindar var einn hluti í þessari spurningakönnun. Þátttakendum var sendur tölvupóstur sem innihélt slóð að spurningakönnuninni. Alls var könnunin send á 137 starfsmenn og af þveim voru 71 sem kláruðu könnunina eða hluta af henni. Svarhlutfall var því 52%. Niðurstöður sýndu fram á fylgni á milli menningargreindar stjórnenda og frumkvöðlahugsunar, en hún var þó veik. Hegðunarþáttur menningargreindar sýndi mestu fylgnina við af fjórum við frumkvöðlahugsun, en hún einnig veik. Allir fjórir þættir menningargreindar sýndu jákvæða, en veika fylgni við frumkvöðlahugsun. Auk hegðunarþáttar sýndi stefnuþáttur mennignargreindar marktæka fylgni við frumkvöðlahugsun. Menningargreind er tiltölulega nýtt hugtak í fræðilegum skilningi. Það er engu að síður mikilvægt að stjórnendur í alþjóðafyrirtækjum geri sér grein fyrir mikilvægi menningargreindar og hvernig hún geti nýst þeim. Þá bæði hvað varðar frumkvöðlastarf með einstaklingum með ...
Titel: |
Menningargreind og frumkvöðlahugsun stjórnenda í alþjóðafyrirtækjum
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Erna Guðrún Sveinbjörnsdóttir 1990- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2018 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|